Vorið 2025

June 12, 2025

Vorið 2025

Sumarið hefur farið vel af stað hjá okkur í Golfklúbbi Sandgerðis. Í byrjun tímabilsins voru höfuðborgarbúar og aðrir kylfingar duglegir að heimsækja okkur og það var gaman að heyra hversu ánægðir þeir voru með völlinn okkar. GKG konur voru með mót hjá okkur ásamt fleiri hópum sem bókuðu og áttu góðan golfdag á Kirkjubólsvelli. Í lok maí var Unglingamót GSÍ þar sem um 160 krakkar mættu til okkar heila helgi. LEK mót var haldið á annan í Hvítasunnu þar sem 50 ára og eldri kylfingar öttu kappi. Það var líf og fjör á vellinum enda ræst út linnulaust frá kl. 8 til kl. 15. 


Í lok apríl hófst svokallað kvennagolf hjá klúbbnum en kl. 17.00 á þriðjudögum hittast konur í klúbbnum ásamt gestum og spila saman 9 eða 18 holur.


Stigamótin eru byrjuð og er þriðja mótið á dagskrá í vikunni. Bikarkeppnin er einnig í fullum gangi og fer fyrsta umferð að klárast.


Framundan er svo einnig nóg um að vera en í lok mánaðar verður haldið Íslandsmót golfklúbba U14. Jónsmessumót er á dagskránni og svo fyrstu vikuna í júlí verður hápunktur sumarsins eða meistaramót klúbbsins og hvetjum við alla meðlimi GSG til að taka þátt. Skráning fer fram á Golfbox og opnar þegar nær dregur.


Svo vonumst við til þess að veðrið muni leika við okkur áfram svo við getum öll notið þess að spila golf langt fram á haustið 🙂